Stay Signed In
Do you want to access your site more quickly on this computer? Check this box, and your username and password will be remembered for two weeks. Click logout to turn this off.
Stay Safe
Do not check this box if you are using a public computer. You don't want anyone seeing your personal info or messing with your site.
Sælt fólk ég ligg uppí rúmi og klukkan er þegar ég kíki núna 15:05 mánudaginn 22. maí, ég er með kvef. Kvef sem er mjög ömurlegt þar sem ég er í Hafnarfirðinum og ætlaði að skemmta mér hérna fyrir sunnan þar til ég þarf að fara aftur heim að vinna :/ Átti kanski að skreppa í bæinn fyrir Þorbjörgu og kaupa eitthvað prinsessudót í afmælið hennar Sóleyjar og þá afmælisgjöf handa henni í leiðinni. Í staðin ligg ég uppí rúmi og hef legið í allan dag og ætla að liggja þar til Karlinn kemur heim úr vinnunni, sem verður svona um fjögur.
Annars er fátt að frétta, ég er að bíða eftir einkunum útúr samræmdu og skólaslitum þar sem ég fæ einkunir yfir vorönn, niðurstöður úr samræmdu eru væntanlegar einhverntíman í næstu viku og skólaslitin eru í lok hennar eða 2. júní. Byðjið fyrir mér.
Ég var lengi að þessu pikki, klukkan er orðin 15:35 svo ég ætla að segja þetta gott í bili.
Mæja mús
15. maí 2006
♥ Pretty Pretty Please ♥
Long time no blog eins og einhver segir einhverstaðar.
Af einhverjum ástæðum á ég það til að hugsa slatta og pæla jafnvel meira.
Pælingarnar núna snúast um framtíðina, grunnskólanum gott sem lokið og þá hvað? Ég gramsaði í gegnum bæklinga og heimasíður frá hinum og þessum skólum og endaði aftur á byrjunarreit í þeim málum eða í Verkmenntaskólanum á Akureyri sem að því er virðist er sá skóli sem býður upp á fjölbreittast listnám af þeim sem eru líka með náttúrufræðibraut. Mig langar til að taka náttúrufræðibraut og listnámsfög í vali, fatasaum og myndlist allavegana til að byrja með, svo á ég eftir að ákveða hvað gerist í framhaldinu, þetta er allavegana skólaplanið(pælingin) fyrir næstu eitt/tvö árin en þetta getur breist aftur á morgun eða hinn.
Ég ætlaði að skrifa mikið meira en klukkan er orðin helvítis hellings margt og ég ætla að fara að sofa. To be continued semsagt :P